If you want to survive a war, you got to become a war!


mánudagur, mars 01, 2004
Jæja kæru lesendur, nú er ég fokkíng hættur að nota blogger en örvæntið ekki.......................................www.folk.is/runtothehills er komið í gagnið. Með athugasemdum og allt. Endilega kíkið við.



fimmtudagur, febrúar 26, 2004
Nú er ég virkilega að spá í að færa viðskipti mín til folk.is - ég vil fá athugasemdir!



laugardagur, febrúar 21, 2004
Jæja þá er þetta búið. Arsenal tryggðu sér enska meistaratitilinn í dag - sad but true! Utd virðast hreinlega ekki hafa liðið til að klára dæmið og vil ég fyrst og fremst kenna því um að sumarkaupin voru öll til framtíðar en ekki til að hafa áhrif á stundinni. Á meðan misstum við meistara Beckham auk Verons sem stóð sig frábærlega í meistaradeildinni í fyrra og er mikill missir í þeirri keppni þó svo að áhrif hans í deildinni hafi ekki verið svo mikil í fyrra. Nýju menn Utd hafa staðið sig misjafnlega og raun hefur ekkert komið út úr neinum þeirra nema örlítið út úr Ronaldo. Ég er svo sem ekki búinn að afskrifa neinn af nýjum mönnunum enda held ég að öllum hafi verið það ljóst að um framtíðarkaup var að ræða í öllum tilfellum. Arsenal eru aftur á móti að keyra á sínum gamla mannskap sem þekkir hvorn annan eins og sína eigin fjölskyldu og hafa nýtt það mjög vel auk þess sem þeir eru svo vel settir að hafa innan sinna raða besta knattspyrnumann í heimi um þessar mundir. Annars er deildin nokkuð á því róli sem við mátti búast. Chelsea munu enda í þriðja sæti eins og flestir spáðu þeim og Liverpool og Newcastle munu bítast um fjórða sætið. Charlton reikna ég ekki með að endi ofar en í 6. sæti.
Sem sagt, deildin er eins og við mátti búast þó svo að ég hafi orðið fyrir vonbrygðum þar sem ég vonaðist eftir því að nýju menn Utd mundu koma sterkari inn - en nei!!




Í tilefni af 25 ára afmælinu hennar í dag ákvað ég að setja mynd af þessari gríðarlega miklu hænu Jennifer Love Hewitt hérna inn. Djöfulsins hæna er hún maður.



Þær hræðilegu fréttir bárust mér til augna í dag að Ozzy er að öllum líkindum búinn að halda sína síðustu tónleika. Fjórhjálaslysið sem hann lenti í fyrir jól er um að kenna og því er þessi guðfaðir þungarokksins ( aka prince of darkness/the madman) búinn að sjá sína sæng útbreydda og reiknar með því að leggja hljóðnemann á hilluna hvað tónleika varðar í það minnsta. Þetta eru skelfilegar fréttir þar sem ég átti enn eftir að sjá prinsinn og gjörsamlega óþolandi í ljósi þess að ég átti miða á tónleikana sem féllu niður vegna þessa slyss sem hann lenti í. Þetta átti greinilega ekki að gerast - mér ber að dýrka Ozzy úr fjarlægð.



miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Mér fannst bara rétt að setja eins og eina mynd að hinum gríðarlega söngvara Bruce Dickinson hérna inn til að létta manni skapið.



Nú er ég búinn að vera svona sex tíma að rembast við að byrja á einhverju fokkíng verkefni en það er svo af og frá að ég nenni því. Djöfull er leiðinlegt í skólanum um þessar mundir.



Jæja, nú er það orðið ljóst að Iron Maiden var tekjuhæsta metalband ársins ´03. Á topp 10 listanum var Maiden reyndar eina metalbandið sem kom nú ekki átakanlega á óvart. Það sem kemur hinsvegar skemmtilega á óvart við þennan topp 10 lista er að rapparar, hipphopparar og aðrir í þeim dúr áttu engan fulltrúa á topp 10. Ég reikna með því að það sé mikið vega þess að flestir þeir sem sátu efst á listanum voru í eldri kantinum eins og t.d. Rolling Stones, Paul McCartney og Fleetwood Mac sem eru bönd sem höfða til fólks á breiðum aldri frekar en þessir rapparar. Ein kona var á listanum en það var hún Dido sem var í 10. sæti og er það afar athyglisvert að það skuli ekki vera einhver strippari (Britney og þessar beru gellur allar) sem sé fulltrúi kvenna á listanum. Það er sem ég segi, nekt selur ekki tónlist!



þriðjudagur, febrúar 17, 2004
Ég á í töluverðum erfiðleikum með námið þessa dagana. Ekki það að þetta sé neitt erfiðara en venjulega heldur er ástæðan sú að ég er ekki beint fullur áhuga. Ég var t.d. rétt í þessu að átta mig á því að áhugi minn á stjórnmálum hefur minnkað mikið frá því að ég byrjaði í stjórnmálafræði. Drepleiðinleg fög eins og Evrópusamvinna, Alþjóðavæðing og stjórnmál alþjóðahagkerfisins og að ógleymdri aðferðafræðinni hafa fengið mig til að hafa lítinn sem engann áhuga á stjórnmálum í dag. Þetta ætti svo sem ekki að koma mér neitt í opna skjöldu þar sem auðvitað var fullvíst að ég mundi lenga í leiðinlegum fögum en það sem villti fyrir mér var að fyrsta árið var bara helvíti fínt og því er annað árið gríðarleg vonbrigði. Mikið hlakkar mig til að verða búinn í þessu akkurat núna. Það er því nokkuð ljóst að ég fer ekki í framhaldsmál í stjórnmálafræði eins og staðan er í dag (nema hugsanlega ef að Evrópusambandið yrði lagt niður og alþjóðavæðing mundi stoppa). Annars er nú ef til vill fullsnemmt að fullyrða slíkt.

ps. er að hlusta á hið stórkostlega "hey stoopid" með meistara Alice Cooper!



Ég gleymdi að nefna það í gær að Hertha Berlin unnu aftur um helgina og hafa því sigrað tvo leiki í röð. Ætli þeir séu loksins að finna sig eftir að fíflið Stevens hætti með liðið. Þess má geta að ég hef heimildir fyrir því að Stevens hafi verið mútað af stjórnamönnum Werder Bremen og það hafi verið ástæðan fyrir slæmu gengi minna manna í vetur. Ég er því bjartsýnn á að við komum sterkir til leiks næsta haust.



mánudagur, febrúar 16, 2004
Ég mátti nú hreinlega til með að skella þessari stórglæsilegu mynd hérna inn á. Fyrir þá sem standa á gati (skömminn er ykkar ;) ) þá eru þetta hljómsveitirnar Slayer og Nuclear Assault. Þessi mynd er sennilega tekin á þeim tíma sem rokkið toppaði (svona ´86 - ´89).



Þátturinn með Derren Brown í kvöld var það ótrúlegasta sem ég hef séð. Ég er gjörsamlega orðlaus. Ég nánast pissaði á mig undir það síðasta. Þannig var að Derren ákvað að fara í rússneska rúllettu. Hann setti auglýsingu í spilun og fólk sendi inn eitthvað myndband og hann valdi úr því 100 manns úr þeim sem sendu inn umsókn. Svo stúderaði hann hópinn allann og fækkaði stöðugt í hópnum þangaði til hann var endanlega búinn að velja einn strák sem átti að spila rúllettuna við hann. Strákurinn var þó ekki í neinni hættu þar sem hann átti einvörðungu að setja kúlu í eitt hólfið á byssunni sem voru númeruð og Derren Brown ætlaði að lesa úr honum í hvaða hólf hann setti skothylkið. Strákurinn setti skotið í hólfið og Derren byrjaði að skóta sig í hausinn en ekkert skot kom fyrr en í hólfi eitt og þá var hann búinn að beina byssunni annað. Þetta var ótrúlegt að horfa á.



Nú er sko hátið í bæ. Ég var að fá pöntun frá amazon.co.uk sem ég hafði pantað fyrir mánuði eða svo. Það var margt gott í þessari pöntun en ég verð þó að tiltaka einn geisladisk sérstaklega. Nefnilega diskinn Alive again með heimsmeisturum Nuclear Assault! Þessi besta trash-hljómsveit allra tíma er snúin aftur og gerir það sko með stæl. Diskurinn er tær snilld og sýna þessir gömlu refir að þeir hafa engu gleymt og ekki ástæða til annars en að vera bjartsýnn fyrir nýju stúdíóplötuna sem þeir félagar eru að taka upp!



Jæja, ég er mættur aftur eftir orlofsferðina til Egilsstaða. Ég tók suðrið með trompi þegar ég mætti og horfði á beina útsendingu RUV frá Bafta verðlaununum. Þetta var fínasta hátíð og ég var bara nokkuð sannspár. Þó voru þarna nokkrir punktar sem ég sá ekki fyrir en það var innan skekkjumarka. Hæna kvöldsins var Thandie Newton en hún mætti þarna á hátíðini að því er virðist vera eingöngu til að sýna hversu mikil hæna hún er því ég gat ekki séð að hún væri tilnefnt fyrir eitt eða neitt og held ég ekkert sem henni stóð nær. Það merkilegasta við kvöldið var á efa að Scarlett Johanson fékk viðurkenningu fyrir bestan leik í aðalhlutverki kvenna. Það sem er merkilegt við það er að hún er gríðarleg hæna og þær fá yfirleitt ekki verðlaun nema gera sig ljóta með föðrun eða vera helst misþyrmt í kvikmyndunum sem þær leika og eftir því sem ég best veit þá var hvorugt á ferðinni í myndinni sem Scarlett fékk verðlaun fyrir. Vondandi mun þetta skila sér í frekari viðurkenningu umheimsins um að myndarlegir leikarar geti leikið en það hefur verið venja að þeir eigi vægast sagt lítinn möguleika í verðlaunaheiminum samanber gæðaleikarar og leikkonur eins og Brad Pitt, Leonardo Di Caprio, Pamela Anderson, Carmen Electra og Sly Stallone. Að vísu eru verðlaun Scarlett ekki þau einu sem hafa komið til hæna á undanförunum árum en þetta er þó tiltölulega nýtt á nálinni.



mánudagur, febrúar 09, 2004


Hér má sjá mynd af skrifborðsstól. Svona stól var ég einmitt að kaupa mér nema hann er grár (svalari) og með mun flottari lappir (og betri). Það er nú full ástæða til að auglýsa þessi kaup mín þar sem heyrst hefur að með þeim hafi enn einn lífsgæðakapphlaupssigurinn unnist (skattstjórinn er í sorg þar sem hans helsta vígi er fallið).



Jæja loksins loksins. Hertha Berlin unnu um helgina. Þrátt fyrir sigurinn sitja þeir öruggir í neðsta sæti sem er ótrúlega lélegt, sérstaklega í ljósi þess að þeir eru með það góðan mannskap að þeir ættu með réttu að vera að slást um Evrópusæti. Annars er þýska deildin ekki með venjulegu sniði þessa dagana þar sem Bremen sitja í toppsætinu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Mig grunar nú að þeir fari að tapa stigum fljótlega af krafti og Byern sigra þetta eins og þeir eru vanir - spurning hvort að Hertha eigi enn möguleika á meistaradeild?!!??






This page is powered by Blogger. Isn't yours?